|
14.10.2011 13:27:47 / hamar5
Faxaflóamót hjá 5. flokki á sunnudag kl. 11:00 á gervigrasvellinum á Selfossi- hringt verður í leikmenn.
Bestu kveðjur, Óli Jó
»
15.09.2011 18:10:31 / hamar5
Dagskrá Kl. 12:00 knattþrautir Kl. 12:45 sumarið gert upp, ný æfingatafla og vetrarstarfið kynnt Kl. 13:15 grillveisla og ís Kl. 14:00 Hamar – ÍH 2. deild Mætum öll og tökum mömmu og pabba með .
»
07.09.2011 21:43:19 / hamar5
Æfing verður á morgun hjá 6.fl. kl 15:40-16:30 Hjá 5. fl. 16:30-17:20
engin æfing er á föstudag vegna forfalla þjálfara.
kv . Jónas
»
05.09.2011 19:30:19 / hamar5
Æfingar eru á eftirfarandi tímum: 6.fl. Þriðjud. 16:00-16:50 Fimmtud. 15:40-16:30 Föstud. 14:00-14:50
5.fl. Þriðjud. 16:50-17:40 Fimmtud. 16:30-17:20 Föstud. 14:50-15:40
Í september eru allar æfingar á gervigrasvellinum við skólann. Muna eftir legghlífum og fótboltaskónum.
Sjáumst hressir. Kv. Jónas
»
28.08.2011 21:58:42 / hamar5
Æfingar verða á eftirfarandi tímum í vikunni. Mánudagur kl 16:00-17:15 Miðvikudag kl. 16:00-17:15 Fimmtudag kl. 15:00-17:00 Allar æfingar eru á Hamarsvelli þessa vikuna.
»
21.08.2011 19:08:49 / hamar5
Æfingatímar verða á eftirfarandi tímum þessa vikuna:
Mánudagur 16:00-17:15 Miðvikudagur 16:30-17:45
Fimmtudagur 17:00 -18.00 Ægismenn mæta á þessa æfingu og á eftir verður farið á Hoflandsetrið og borðað pizzu og horft á leik KR og ÍBV í pepsideildinni. Verð 950 kr á mann.(Pizza og gos). Allir úr 5.fl og 6. fl. velkomnir.
6. flokkur fer svo á æfingamót í Grindavík á laugardaginn.
Kv. Jónas
»
18.08.2011 09:52:04 / hamar5
Seinkun verður á æfingatíma í dag, vegna breyttra aðstæðna. Sjáumst hressir.
»
15.08.2011 22:01:20 / hamar5
Á morgun 16.ágúst koma Strákar frá Snæfellsnesi í heimsókn með A og B lið. Einnig kemur D lið frá Breiðabliki. Vegna þessa er ekki æfing í fyrramálið heldur eiga allir að mæta upp á Grýluvöll kl 16:30. Ath. Allir að muna eftir legghlífum.
Sjáumst hressir. Jónas
»
12.08.2011 09:28:22 / hamar5
Njarðvík kemur í heimsókn í dag með 3 lið A, B og C lið. Endilega reynið að fá fjöldskylduna til að koma og styðja við bakið á okkur......
»
08.08.2011 20:04:03 / hamar5
Á morgun þriðjudag fer 5. flokkur í ferð til Borgarness. Við fáum rútuna að láni og leggjum í hann 14:20 frá íþróttahúsi. Við komum við í þorlákshöfn og tökum með strákana þaðan.
Leikirnir þ.e. A og B leikir eru kl. 17:00 og 17:50. Á eftir er stefnan að borða á KFC í Mosó og horfa svo á seinni hálfleik á leik Aftureldingu og Hamar í 2. deildinni.
Taka þarf með ca. 2200 kr þ.e. 1000 kr í bensín og rúmlega 1000 kall á KFC.
Sjáumst hressir á æfingu í fyrramálið kl. 11:00.
C og D lið spila svo við Fylki á miðvikudag í Rvk. og reynum við að fara með rútu á þann leik. En meira um það kemur í ljós annað kvöld.
Á föstudag eru svo leikir A. B C. D. liða við Njarðvík(D. lið spilar við Breiðablik 6). Leikið er á Grýluvelli.
»
24.07.2011 22:05:09 / hamar5
Engar æfingar eru þessa vikuna vegna sumarfría. Engu að
síðu mega strákarnir æfa sig í fótbolta á Hamarsvelli en gæta þarf þess
að fara ekki inná svæði sem eru ný viðgerð.
Næsta æfing er á þriðjudag 3. ágúst kl 11:00. Leikir hefjast svo 9. og 10. ágúst.
Kveðja. Jónas
»
10.07.2011 20:47:17 / hamar5
Sæl öll.
Ég vil byrja á að þakka fyrir samveruna á N1 mótinu. Allt gekk vel á
skemmtilegu móti og má það þakka samstilltum foreldrahópi og frábærum
fótboltastrákum sem allir stóðu sig með prýði.
Næsta vika verður erilssöm. Á morgun mánudag verður leikur hjá 5.
flokki niðri Þorlákshöfn. Hefst leikurinn kl. 16:00 og við mætum við
íþróttahús kl:15:15 . Farið verður á einkabílum og vantar einhverja
bílstjóra.
6. flokks strákar eiga að mæta kl. 13:00 niður á Hamarsvöll á morgun mánudag þar sem æfingaleikur fer fram við Ægi.
Engin æfing er því á morgun kl.11:00.
Æfing verður á þriðjudag kl. 11:00
Æfing verður á fimmtudag .(tækniæfing)
Á fimmtudag er svo aftur leikur niðri Þorlákshöfn.
Kær kveðja. Jónas
»
28.06.2011 08:55:43 / hamar5
Sæl enn og
aftur... Það er álagstími í boltanum þessa dagana og ekkert lát á
leikjum. A og B lið okkar eru nú á heimleið frá Ísafirði þar sem þeir
spiluðu í dag. C og D lið eiga leik í dag við Fram kl. 16:40. Æfing
kl 11:00 fellur
því niður en í staðin á að mæta í íþróttahúsið kl: 15:20 á í dag. Þeir
sem eiga að mæta eru:
Allir sem geta úr 6. flokki.
Arnar Dór
Anton óli
Árni
Bjössi
Viktor
Hlynur
Aðrir eru að ég held lagðir af stað norður.
Mig vantar einhvern sem getur keyrt með mér. Ég verð
í símasambandi í kvöld eða fyrir hádegi á morgun. Ef þið lesið þennan
póst megið þið bjalla í mig til að staðfesta eða afboða.
Kær kveðja Jónas.
»
21.06.2011 22:56:50 / hamar5
Á morgun/í dag miðvikudag spilum við niðrí Þorlákshöfn kl: 17:00. Okkur vantar einhvern sem getur keyrt...ath. 300 kr bensínpening.
Allir mæta úr 5 flokki. Það koma nokkrir úr 6. flokki með.
Hittumst kl 16:00 við íþróttahúsið. Kv. Jónas
»
14.06.2011 21:33:35 / hamar5
Okkur vantar einhverja BÍLSTJÓRA á morgun til þess að koma okkur til Rvk. Hittumst kl:15.40 við íþróttahúsið og vonandi reddast bílar. Ath Muna 500 kr bensínpening.. kv. Jónas
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|